Þorsteinn Baldur Friðriksson, athafnamaður og fyrrverandi forstjóri Plain Vanilla, og sambýliskona hans, Rós Kristjánsdóttir, gullsmiður og annar eigandi Hik & Rós, eignuðust sitt annað barn saman á dögunum. Fyrir eiga þau soninn Kristján Mána sem fagnar sex ára afmæli sínu þann 19. febrúar næstkomandi.
Þorsteinn tilkynnti um komu barnsins, sem er drengur, á Instagram-síðu sinni.
„Glænýr Þorsteinsson kom í heiminn 13. janúar. Rós stóð sig eins og hetja og við vorum komin heim á Ægissíðu samdægurs. Þetta er bara ágætis byrjun á 2025,” skrifaði Þorsteinn við fallega myndaseríu.
Smartland óskar Þorsteini, Rós og Kristjáni Mána hjartanlega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn.