Halldóra Vífilsdóttir kynnti nýja barnafatalínu Útgerðarinnar með heljarinnar teiti sem haldið var í íslenska sjávarklasanum.
Útgerðin er nýtt hönnunarfyrirtæki sem sækir innblástur í þá arfleifð okkar sem tengist hafinu. Vörumerki Útgerðarinnar heitir Iceland Ocean Fisheries en nafnið kemur frá Iceland Fisheries sem var bresk-íslensk útgerð sem stofnuð var í Vestmannaeyjum rétt um aldamótin 1900.