Steve Jobs stofnandi Apple átti það til að fara í langa göngutúra og ekki að ástæðulausu enda sýnir taugafræðirannsókn fram á að langir göngutúra geta aukið sköpunarkraftinn um 60 prósent.
Inc greinir frá því að Jobs hafi farið í göngutúra til þess að hreinsa hugann og þróa nýjar hugmyndir. Ævisöguhöfundur Jobs komst fljótlega að því að Jobs kaus að eiga alvarlegar samræður á röltinu. Jobs og Jony Ivy, aðalhönnuður Apple, sáust einnig gjarnan í hugmyndagöngutúrum.
Samkvæmt rannsókn er best að fara í langa göngutúra til þess að koma á samstarfi milli tveggja aðila og opna hugann upp á gátt. Samkvæmt rannsókn sem gerð var við Stanford-háskólann jókst sköpunarkraftur einstaklinga um 60 prósent við göngutúra.
Taugasérfræðingar sem rannsaka athyglisgáfuna segja að niðurstöðurnar komi sér ekki á óvart þar sem forfeður okkar hreyfðu sig mikið. Frá sjónarhorni þróunarkenningarinnar má segja að hugur mannsins hafi þróast meðan maðurinn var á hreyfingu, gangandi fleiri kílómetra á dag. Hugurinn þráir enn þá þá upplifun.
Það gæti verið góð hugmynd að standa upp frá tölvunni í smástund og fara í léttan göngutúr. Það gæti margborgað sig, að minnsta kosti var það þannig í tilfelli Steve Jobs.