Söngkonan Bríet, sem var á lista Smartlands yfir eftirsóttustu einhleypu konur landsins, er komin á fast. Hún og Halldór Karlsson listaháskólanemi og crossfitstjarna slitu sambandi sínu í vor.
Sá heppni heitir Rubin Pollock og er gítarleikari í Kaleo. Fréttablaðið greindi frá þessu. Þar kemur fram að parið hafi verið á ferð og flugi um landið upp á síðkastið og hafi til dæmis heimsótt Reynisfjöru.
Tónlistarmaðurinn Auður birti mynd af sér og parinu í gær:
Í vor gaf Bríet út lagið Esjan sem er eitt mest spilaða lag landsins sem er ekkert skrýtið því lagið er með fallegum línum og góðri stígandi! Smartland óskar parinu til hamingju með sambandið og vonar að þau fari að vinna saman í framtíðinni!