Jóna Vestfjörð Hannesdóttir lögfræðingur hefur hafið störf hjá lögmannsstofunni LOGOS. Auk þess að vinna á LOGOS rekur Jóna verslunina Seimei ásamt móður sinni. Jóna er nú flutt til Íslands en hún er gift fótboltamanninum Hólmari Erni Eyjólfssyni. vb.is greinir frá þessu.
Jóna hefur búið erlendis í áratug, nú síðast í Þrándheimi í Noregi. Þar sinnti hún fjarvinnu í tengslum við Seimei og stundaði fjarnám í verðbréfamiðlun. Um tíma starfaði hún einnig hjá lögmannsstofunni Bjerkan Stav Advokatfirma Trondheim. Jóna útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands sumarið 2018.
Lesendur Smartlands þekkja Jónu vel en hún var gestur Heimilislífs 2019.
Í fyrra greindi Smartland frá því að Gríma Björg Thorarensen hefði hannað nýtt eldhúsi fyrir Jónu sem býr nú í Garðabænum. Eins og sést á myndunum úr eldhúsinu var samspil fegurðar og góðs skipulags í hámarki.