Tanja Ýr Ástþórsdóttir, áhrifavaldur og eigandi Glamista Hair, hefur fest kaup á húsi í Manchester-borg ásamt kærasta sínum til tveggja ára, Ryan. Tanja Ýr flutti til Manchester-borgar snemma á síðasta ári til að koma fyrirtæki sínu, Glamista Hair, betur fyrir á alþjóðlegum markaði, en fyrirtækið selur hárlengingar. Hún greindi frá fasteignakaupunum á Instagram-reikningi sínum í gærdag.
„Finally home sweet home,“ skrifaði Tanja Ýr við myndaseríuna, en parið ætlar að leggjast í endurbætur og gera eignina að sinni á komandi mánuðum.
Tanja Ýr er vinsæl samfélagsmiðlastjarna og farsæl viðskiptakona. Frá árinu 2014 hefur hún sinnt margvíslegum verkefnum í tengslum við samfélagsmiðla og hjálpar meðal annars áhrifavöldum og fyrirtækjum að koma sér á framfæri. Tanja Ýr státar af 36.000 fylgjendum á Instagram.