Góð ráð fyrir vini sem stofna saman fyrirtæki

Vinir geta unnið vel saman.
Vinir geta unnið vel saman. Unsplash.com/Emma Dau

Það er margt sem þarf að huga að þegar maður ákveður að stofna fyrirtæki með vini sínum. Þetta þekkja viðskiptakonurnar Liz Simpson og Sarah de Vere-Drummond sem stofnuðu saman Kip Hideaways sem er vinsælt ferðaþjónustufyrirtæki.

 „Þetta er ekki eitthvað sem ég hefði viljað gera ein. Það er svo mikilvægt að geta deilt með einhverjum öllum litlu sigrunum eða því þegar illa gengur,“ segir Simpson í viðtali við Stylist Magazine.

1. Finndu einhvern sem bætir þig upp

„Þið munuð óhjákvæmilega rífast meira ef þið eruð með nákvæmlega sama bakgrunn og sömu styrkleikana. Ef þið hins vegar hafið eitthvað mjög ólíkt fram að færa þá fæst meira jafnvægi í vinnusambandið. Þá þýðir það líka að þið þurfið ekki að leita eins mikið til annarra eftir aðstoð því þið nú þegar hafið margt fram að færa sem gagnast ykkur.“

2. Gerið eitthvað sem þið elskið

„Það getur verið lýjandi að koma fyrirtæki á laggirnar. Vinnustundirnar eru margar og gróðinn lítill. Þá er mikilvægt að vera að gera eitthvað sem maður brennur fyrir. Ég hefði t.d. ekki lagt mig alla við ef ég hefði bara verið að þessu fyrir peninginn.“

3. Verið hreinskilin

„Það er mikilvægt að leyfa ekki deilumálum að liggja á milli hluta. Það getur verið óþægilegt að útkljá ágreining þegar um vin er að ræða en þeim mun nauðsynlegra. Ef það er eitthvað sem þarf að ræða þá skal gera það strax. Annars mun það ekki bara bitna á vinnusambandinu heldur vináttunni líka.“

4. Vertu reiðubúinn að fá endurgjöf

„Hlustaðu á það sem hinn hefur að segja og íhugaðu vandlega skilaboðin jafnvel þótt þau falli innan þinnar sérhæfingar. Það er gott að horfa á hlutina öðrum augum frá nýju sjónarhorni.“

5. Ekki segja já við öllu

„Við höfum alltaf verið á varðbergi gagnvart því að vaxa of hratt. Við viljum halda í okkar sérkenni og okkar kúnnahóp. Ef við verðum bara eins og hver önnur stór fyrirtæki á markaðnum þá missum við okkar sérstöðu.“

6. Vinna saman og halda öllum upplýstum

„Oft vinnum við heimanfrá en við leggjum þó áherslu á að vinna saman að minnsta kosti einu sinni í viku. Þannig náum við að ræða saman hluti og kasta hugmyndum á milli okkar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál