Þetta eru heitustu læknar landsins

Læknastéttin er hugguleg.
Læknastéttin er hugguleg. Samsett mynd

Hvern dreymir ekki um lækninn í hvíta sloppnum sem leysir að því er virðist öll heimsins vandamál og uppfyllir villtustu drauma.

Smartland fór á stúfana og tók saman lista yfir heitustu lækna landsins sem lesendur geta notið yfir kertaljósi nú um helgina.

Haldið ykkur fast!

Tómas Þór Ágústsson!

Tómas Þór Ágústsson lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 2001. Hann stundaði framhaldsnám í Oxford og Lundúnum 2002-2012 en hefur síðan verið sérfræðilæknir í lyf- og innkirtlalækningum á Landspítala.

Tómas hefur einstakan fatastíl sem má sjá glitta í undir læknasloppnum. Hann á fjölmjörg áhugamál, þar á meðal skrautfiskarækt.

Tómas Þór Ágústsson sérfræðilæknir í innkirtlalækningum og læknir hjá Lyfjaeftirliti …
Tómas Þór Ágústsson sérfræðilæknir í innkirtlalækningum og læknir hjá Lyfjaeftirliti Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórdís Kjartansdóttir!

Þórdís Kjartansdóttir er einn af færustu lýtalæknum landsins og starfar á Dea Medica. Hún lærði í Frakklandi og má segja að hún sé sérfræðingur í brjóstaminnkunum þar sem hún lærði réttu handtökin af tveimur kvenlýtalæknum í Frakkalandi.

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica.
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica.

Jórunn Atladóttir!

Jórunn Atladóttir er skurðlæknir með sérgrein í aðgerðum á neðri meltingarvegi og starfar á Landspítalanum. Jórunn er fjölhæf ævintýrakona sem á fjölmörg áhugamál sem flest eru tengd útivist. Hún stundar sjósund af kappi og er í sjósundshópnum Bárunum sem syntu í sumar í Norður-Íshafinu. Hún spilar golf og prjónar í frístundum.

Jórunn Atladóttir skurðlæknir.
Jórunn Atladóttir skurðlæknir.

Andri Wilberg Orrason!

Andri Wilberg Orrason er menntaður þvagfæraskurðlæknir og starfar við Royal Marsden-sjúkrahúsið í Lundúnum. Hann er mikill ævintýramaður og nýtur þess að ferðast vítt og breitt um heiminn. Andri ferðaðist alla leið til Suður-Afríku árið 2018 til þess að ljúka við verk­lega hlut­ann af fjar­námi sínu í köf­un­ar­lækn­ing­um.

Andri Wilberg Orrason.
Andri Wilberg Orrason. Skjáskot/Facebook

Eva Jónasdóttir!

Eva Jónasdóttir er fæðinga- og kvensjúkdómalæknir sem starfar hjá Domus Læknar og á Landspítalanum. Eva er hraustleikinn uppmálaður.

Eva Jónasdóttir er ekkert smá flott og heilbrigð í útliti.
Eva Jónasdóttir er ekkert smá flott og heilbrigð í útliti. Skjáskot/Facebook

Hannes Sigurjónsson!

Hannes Sigurjónsson lauk læknanámi frá Háskóla Íslands og sérhæfði sig í lýtalækningum á Karolinska-háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Hann starfar hjá Læknahúsinu Dea Medica þar sem hann sérhæfir sig í fegrunarlækningum á brjóstum, bol og andliti. Hannes er mikill hestamaður og á mörg verðlaunahross. Þá stundar hann einnig skíði og fluguveiði.

Hannes Sigurjónsson lýtalæknir á Dea Medica.
Hannes Sigurjónsson lýtalæknir á Dea Medica. Skjáskot/DeaMedica.is

Anton Örn Bjarnason!

Anton Örn, húðlæknir á Húðlæknastöðinni, er sérfræðingur í húðlækningum og þykir ekki bara klár heldur einstaklega myndarlegur. 

Anton Örn Bjarnason húðlæknir á Húðlæknastöðinni.
Anton Örn Bjarnason húðlæknir á Húðlæknastöðinni. Skjáskot/Húðlæknastöðin

Eva Björk Úlfarsdóttir!

Eva Björk Úlfarsdóttir er fæðinga- og kvensjúkdómalæknir og starfar sem sérfræðingur á kvenlækningadeild Landspítalans. Hún nam læknisfræði við háskólann í Árósum. Bráðmyndarleg alveg!

Eva Björk Úlfarsdóttir kláraði embættispróf í læknsifræði frá Árósum.
Eva Björk Úlfarsdóttir kláraði embættispróf í læknsifræði frá Árósum. Skjáskot/Facebook

Ottó Guðjónsson!

Ottó Guðjónsson er án efa einn þekktasti lýtalæknir landsins. Hann starfaði um árabil í Bandaríkjunum en flutti til Íslands árið 2002 eftir tæplega 18 ára dvöl í New York. Ottó er mikill menningarmaður og duglegur að sækja leikhús og aðra menningarviðburði.

Ottó er flottur!
Ottó er flottur! Skjáskot/DeaMedica

Ari Víðir Axelsson!

Ari Víðir Axelsson er sérfræðingur í almennum barnalækningum og ofnæmislækningum barna og starfar hjá Domus. Hann er mikill útivistarmaður og nýtur þess að eyða tíma sínum á fjöllum uppi.

Ari Víðir hefur gaman að ferðast um brattlendi og loftin …
Ari Víðir hefur gaman að ferðast um brattlendi og loftin blá. Skjáskot/barnalaeknardomus.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda