Milla Ósk ráðin til ACT4

Milla Ósk Magnúsdóttir.
Milla Ósk Magnúsdóttir. Ljósmynd/Jónatan Grétarsson

Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrarstjóri og yfirframleiðandi hjá ACT4 framleiðslufyrirtækinu. ACT4 var stofnað í lok árs 2022 og sér um að þróa og fjármagna framleiðslu á íslensku sjónvarps- og kvikmyndaefni fyrir alþjóðamarkað.

„ACT4 er með mörg járn í eldinum og lauk nýlega tökum á sinni fyrstu sjónvarpsþáttaröð, Reykjavik Fusion fyrir Símann og þess vegna skiptir miklu máli fyrir okkur að ráða fólk rétta fólkið til starfa. Milla er snilldar starfskraftur með fjölbreytta reynslu sem mun nýtast ACT4 á margan hátt og það eru forréttindi að fá svo öfluga manneskju í lið með okkur“ segir Ólafur Darri Ólafsson leikari og einn eigenda ACT4 í fréttatilkynningu.

Milla Ósk var áður aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, og mennta- og menningarmálaráðherra. Þar áður starfaði hún hjá Ríkisútvarpinu sem fréttamaður og aðstoðarframleiðandi frétta, auk þess að sinna dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Milla Ósk er með ML-próf í lögfræði frá Háskóla Reykjavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda