Jóhanna Elísa Engelhartsdóttir sigraði í The Biggest Loser Ísland í kvöld. Úrslitin voru kynnt í beinni útsendingu frá Ásbrú þar sem þættirnir fóru fram. Jóhanna Elísa var 126,2 kíló þegar þátturinn hófst en er nú 73,7 kg. Hrönn Harðardóttir, Anna Lísa Finnbogadóttir og Jóhanna Elísa kepptu til úrslita í kvöld.
Jónas Pálmar Björnsson sigraði í flokki þeirra sem sendir voru heim á meðan The Biggest Loser Ísland stóð yfir. Jónas var rúmlega 140 kg þegar þættirnir hófust en hann er 27 ára kjötiðnaðarmaður hjá SS á Hvolsvelli.