Þessir hlutir eru ómissandi í ferðalagið

Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir.
Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir.

„Það eru nokkrir hlutir sem ég tek alltaf með mér þegar ég er á ferðalagi með fjölskylduna og geta komið sér vel þegar á þarf að halda. Ég er eins og skáti þegar kemur að því að pakka niður í tösku, öllu við búin og yfirleitt er ég með einhver ráð og trix í töskunni þegar einhvern vantar plástur, mat, eða eitthvað að dunda. Hér er smá listi yfir hluti sem gott er að hafa meðferðis þegar við ferðumst,“seg­ir Ásdís Ragna Ein­ars­dótt­ir grasa­lækn­ir í sín­um nýj­asta pistli á Smartlandi Mörtu Maríu. 

Hér eru þeir hlutir sem Ásdís Ragna mælir með að taka með í ferðalagið:

*Hnetur, fræ, ávextir og dökkt súkkulaði. Mjög vinsælt hjá okkur eru kasjúhnetur, möndlur, valhnetur, ristuð graskersfræ, lífrænt dökkt súkkulaði, kókósflögur og goji ber. Frábært til að halda blóðsykrinum í jafnvægi og þegar svengdin lætur á sér kræla milli mála.

*Sólarvörn fyrir alla fjölskylduna og lífrænt Aloe vera gel. Algjör nauðsyn og ég kaupi alltaf lífræna sólarvörn sem inniheldur ekki toxísk efni t.d. frá Aubrey Organics og Lavera. Aldrei að vita nema sólin fari að láta sjá sig einn daginn!

*Lavender ilmkjarnaolíu, sótthreinsandi handgel og plástra. Lavender er græðandi og bakteríudrepandi og gott að bera á sár.

*Eyrnaolíu. Ég hef alveg lent í því að einhver fái í eyrun í fríinu og þá svínvirkar að hafa eyrnaolíu við höndina svo allir verði glaðir og verði ekki vansvefta.

*Acidophilus gerla og Grape seed extract töflur. Mér finnst nauðsynlegt að hafa acidophilus gerla til að halda meltingunni í lagi þegar maður er að borða annan mat en maður er vanur. Að auki eru gerlarnir ónæmisstyrkjandi og Grape seed extract töflurnar er síðan gott að nota til að koma í veg fyrir sýkingar eða þegar við verðum lasin.

*Lítil plastbox til að setja hollt nesti í og „shake“ plastglas til að hrista sér ofurdrykk á ferðinni. Hef yfirleitt grænt súper næringarduft í litlu boxi og hristi með vatni.

*Spilastokk til að grípa í spil með fjölskyldunni á kvöldin.

*Góða bók til að lesa og litla minnisblokk til að hripa niður góðar hugmyndir sem koma oft til manns í fríinu þegar maður er afslappaður;)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda