Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason og Esther Kaliassa eru nýtt par. Vísir greindi fyrst frá.
Esther á afmæli í dag og deildi Sölvi því fallegri mynd af sinni heitt elskuðu í Instagram-story. Skrifaði hann við myndina að hann væri þakklátur fyrir Esther.
Parið hefur verið að hittast í nokkurn tíma en sjá má á Instagram Estherar að hún og Sölvi hafi ferðast saman til Zanzibar í Afríku fyrir rúmum mánuði síðan. Þá vörðu þau einnig tíma saman á Íslandi yfir áramótin.
Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!