Allir rassar eru flottir rassar en það eru ekki allir sem þora að bera þá og hrista framan í heiminn á samfélagsmiðlum. Hér eru nokkrir glæsilegir sitjandar sem vöktu verðskuldaða athygli á Instagram.
Drottning íslenskra samfélagsmiðla sólaði sig á Puerto Rico, á eyjunni Gran Canaria og fékk rassinn sinn skerf af D-vítamíni.
Hitinn á Majorka fór vel með Jóhönnu Helgu sem beraði bossann í grænu bikiníi.
Athafnakonan og áhrifavaldurinn lét fara vel um sig við Mohonk-vatn í New York–fylki.
Leiðsögumaðurinn beraði bossann og brosti sínu breiðasta framan í myndavélina á ferð sinni um Reykjadali.
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn hefur verið dugleg að þjálfa upp rassvöðvana.
Katrín var sumarleg og sæt í hvítum gallabuxum Kaupmannahöfn.
Camy klikk skellti í eldheita „boudoir“ mynd og leyfði afturendanum að njóta sín.
Prettyboitjokko hefur sagst vera með þráhyggju fyrir nýjum fötum en eins og sést á þessari mynd þá finnst honum ekkert leiðinlegt að vera klæðalaus.
Tanja Ýr nýtti sólina vel.
Laganeminn og áhrifavaldurinn er með skemmtilegan og litríkan fatastíl. Hún leyfði rassinum að njóta sín í þessu eiturgræna setti.
Afrekskonan Katrín Tanja eyddi fallegum dögum á Bresku jómfrúareyjunum.
Stjörnufréttakonan Eva Ruza geislaði í fallegum kjól sem minnir á Marilyn Monroe–kjólinn sem Kim Kardashian klæddist á Met Gala–viðburðinum 2022.
Einn af Æði–strákunum virtist tilbúinn að „twerk-a“ enda með rassinn í það.
TikTok–stjarnan átti góða daga á Tenerife og bleytti bossann í tæra vatninu.
Katrín Lóa skellti í speglasjálfu.
Þroskaþjálfinn Íris Svava var stórglæsileg í þessum fjólubláa kjól.
Gummi kíró hnyklaði rassvöðvana fyrir fylgjendur sína á eldheitri mynd.