Flestir muna eflaust eftir sjónvarpsþáttaröðinni Strandvörðum (e. Baywatch), en þættirnir voru sýndir við miklar vinsældir á árunum 1989 til 2001. Fólk sat sem límt við sjónvarpsskjáinn og fylgdist með ævintýrum Mitch Buchannon og hans tryggu strandvarðaliðum, en hver þáttur bauð áhorfendum upp á æsispennandi dag á ströndinni í borg englanna, Los Angeles.
Nú þegar rúmlega 22 ár eru liðin frá því að lokaþátturinn fór í loftið og frægðarstjarna flestra leikara seríunnar dvínað er forvitnilegt að sjá hvernig leikhópurinn hefur breyst á síðastliðnum tveimur áratugum.
David Hasselhoff sem fór með hlutverk Mitch Buchannon er í dag 71 árs gamall og heldur í unglegt yfirbragð sitt. Hann á Guinness–heimsmetið fyrir að vera sá einstaklingur sem flestir hafa horft á sjónvarpi, en áður en Hasselhoff lék strandvörðinn Mitch Buchannon lék hann í sápuóperunni The Young and the Restless og Knight Rider.
Ljóshærða leikkonan Pamela Anderson var einungis 22 ára gömul þegar hún hreppti hlutverk C.J. Parker í Strandvörðum. Leikkonan hefur lifað nokkuð skrautlegu lífi, en hún hefur gengið í hjónaband fimm sinnum. Anderson sem er 56 ára gömul er ógift í dag.
Það hefur lítið frést af leikkonunni Yasmine Bleeth undanfarin ár, en hún átti hug og hjörtu allra karlmanna í hlutverki sínu sem Caroline Holden. Bleeth er 55 ára gömul í dag.
Paul fór með hlutverk Lt. Stephanie Holden og var sú undirforingi Mitch Buchannon. Frá árinu 2015 hefur Paul starfað sem heilsuþjálfari. Paul er í dag 59 ára gömul.
Chokachi hóf leikferil sinn árið 1995 í Strandvörðum og heillaði heiminn sem hinn elskulegi Cody Madison. Leikarinn var valinn einn af 50 fallegustu mönnum í heimi árið 1997. Chokachi varð 55 ára gamall í janúar.
Eleniak þreytti frumraun sína á hvíta tjaldinu í stórmyndinni E.T. the Extra Terrestrial aðeins 12 ára gömul. Átta árum síðar hlaut hún hlutverk Shauni McClain í Strandvörðum. Leikkonan hefur breyst mikið frá dögum sínum á ströndinni og er í dag skreytt húðflúrum sem þekja útlimi hennar. Eleniak er 53 ára gömul.
Þokkagyðjan D'Errico lætur aldurinn ekki stoppa sig og striplast um fáklædd og birtir reglulega myndir af sér á Instagram. Hún lifir sannkölluðu Strandvarðalífi, en leikkonan fór með hlutverk Donnu Marco í þáttunum. D'Errico er 55 ára gömul.
Jackson fór með hlutverk Hobie Buchannon og var aðeins 11 ára gamall þegar hann byrjaði í þáttunum. Jackson var valinn fram yfir stórleikarann Leonardo DiCaprio sem reyndi fyrir sér sem Hobie. Eftir nokkur erfið ár virðist sem Jackson hafi fundið sig, en hann er gjörsamlega heltekinn af vaxtarrækt. Jackson fagnar 43 ára afmæli sínu í haust.
Nolin fór með hlutverk Neely Capshaw í Strandvörðum og lék í þáttunum í þrjú ár. Hún hefur lítið leikið undanfarin ár en fór með hlutverk í kvikmyndinni Sharknado: The 4th Awakens. Nolin er 51 árs gömul.
Eggert lék hina óttalausu Summer Quinn í þáttaseríunni og var mjög vinsæl leikkona í Bandaríkjunum á tíunda áratugnum. Í dag birtist Eggert af og til á sjónvarpsskjánum og þá í misvinsælum raunveruleikaþáttum. Leikkonan tók þátt í Celebrity Ghost Stories, Tattoo Nightmares, Celebrity Fit Club, Splash og Botched. Eggert er 51 árs gömul.