„Vorum ríkir pabbastrákar, samt ekki eins og í Garðabænum“

Steindór Þórarinsson er nýjasti gestur hlaðvarpsins Sterk saman.
Steindór Þórarinsson er nýjasti gestur hlaðvarpsins Sterk saman.

Steindór Þórarinsson er 45 ára faðir og markþjálfi, betur þekktur sem ADHD pabbi á samfélagsmiðlum. Hann er nýjasti gestur Tinnu Barkardóttur sem heldur úti hlaðvarpinu Sterk saman

Steindór er alinn upp í Hafnarfirði og var svokallað lyklabarn. „Ég ólst upp í kringum viðburði og í Valhöll. Á meðan vinir mínir lásu Andrés önd þá las ég Samúel. Pabbi minn gaf út tímarit og við vinirnir vorum ríkir pabbastrákar, samt ekki eins og í Garðabænum, við þurftum að vinna fyrir okkar,“ segir Steindór.

Skólagangan gekk illa og fékk Steindór alltaf að heyra að hann væri latur og nennti ekki að læra. Hann var alltaf í löngum samböndum en útskýrir að það hafi ekki verið auðvelt að vera í sambandi með honum. „Ég myndi ekki vilja að dóttir mín væri í sambandi með manni eins og mér þó að ég sé góður strákur.“

Hann fór inn í samband með stelpu með ómeðhöndlaða áfallastreituröskun og mætti þeim með sinni ADHD hegðun og hvatvísi.

Byrjaði í neyslu 12 ára gamall

Þrítugur vaknaði hann með húðflúr á maganum: „sex drugs, rock and roll“. „Ég var búinn að eignast son minn þá og fyrsta sem ég hugsaði var hvernig ég ætti að útskýra þetta fyrir honum. Ég og barnsmóðir mín hættum saman áður en hann varð eins árs svo tengslin urðu lítil því barnsmóðir mín var að vernda hann og hélt honum frá mér, sem ég skil,“ segir Steindór, en hann fékk svo annað tækifæri þegar hann eignaðist dóttur sína og hefur vandað sig mikið í því hlutverki.

Aðspurður hvort hann hafi farið að deyfa sig eða reyna að stjórna hausnum sjálfur með vímuefnum segir hann: „Ég fór bara í bullandi neyslu, byrjaði 12 ára.“

Vinahópnum var bannað að taka þátt í íþróttakeppnum á vegum grunnskóla bæjarins vegna slæmrar hegðunar en þeir pössuðu upp á þá sem voru með þeim í skóla. „Það var ekki einelti í skólanum okkar því við vildum það ekki.“

„Eldhúsið er lokað, kokkurinn er týndur“

Steindór fór í Iðnskólann og var fljótur að komast í nemendafélagið. „Ég var ekki í skólanum til að læra, ég var fljótur að koma mér í nemendafélagið þar sem var verið að gera nemendaskírteini en ég fór að gera fölsuð skilríki og selja,“ segir Steindór og bætir við að hann hafi alltaf vantað einhverja spennu.

Sautján ára gamall fór Steindór að vinna á veitingastað úti á landi og læra til kokks sem hefur fylgt honum meira og minna alla tíð síðan. „Átján ára var ég með í að opna og reka skemmtistað, ég hef alltaf verið duglegur og kunnað að vinna og búa til peninga en aldrei kunnað að eiga þá,“ segir hann. 

Steindór átti marga vini sem voru tónlistarmenn. Hann var ungur, í neyslu og vann sem kokkur á Prikinu líka. „Stundum stóð á skiltinu þar sem réttur dagsins var: „Eldhúsið er lokað, kokkurinn er týndur“,“ segir Steindór, en hann var hangandi með hættulegum mönnum og sá ljóta hluti.

Hann flutti til Noregs með nýfæddri dóttur sína og kærustu, var edrú og ætlaði að byrja upp á nýtt. „Ég var allt í einu kominn yfir þrjá veitingastaði og að stofna annan stað svo ég fer að reykja aftur og krassa.“

Munurinn á því hvernig hann vinnur í dag og hvernig hann gerði á þeim tíma er að hann þiggur aðstoð og ráðgjöf frá öðrum og passar að fara ekki fram úr sér eins og vaninn var.

Vonar að börnin sín séu opin og hreinskilin

Löngu áður en krakk varð þekkt hérlendis voru þeir, hann og vinir hans, að reykja það.

Steindór hefur tekið samtal við börnin sín varðandi fortíð sína og hvernig hann vildi að þau væru opin og hreinskilin.

„Ég veit að lífið gerist, ef börnin mín myndu lenda í aðstæðum þar sem þau væru óörugg, hrædd, hefðu tekið eiturlyf eða hvað sem er þá vil ég að þau geti hringt í mig. Ég kem og sæki,“ segir hann. 

Steindór lenti í röð áfalla í lok 2021 sem höfðu mikil áhrif á hann. Hann fór í mikla sjálfsvinnu, horfði bara inn á við og vinna með heiðarleika gagnvart sjálfum sér og öðrum. Síðasta árið hefur verið magnað fyrir Steindór, hann hætti að horfa á alla aðra og horfði inn á við. Síðan þá hafa komið til hans mörg tækifæri og góðir vinir komið í líf hans.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál