Íslenskt apótek vekur heimsathygli

Þau fyrirtæki sem eru tilnefnd eru þau sem hafa tekið …
Þau fyrirtæki sem eru tilnefnd eru þau sem hafa tekið eftirtektarverð skref í að veita neytendum aðgengi að vönduðum og áreiðanlegum upplýsingum.

Íslenska fyrirtækið Lyfja hefur hlotið tilnefningu sem verslun ársins í flokki apóteka á evrópsku verðlaunahátíðinni European Natural Beauty Awards. Verðlaunin verða veitt þann 9. október næstkomandi. Þau fyrirtæki sem eru tilnefnd eru þau sem hafa tekið eftirtektarverð skref í að veita neytendum aðgengi að vönduðum og áreiðanlegum upplýsingum um húð- og snyrtivörur. 

Undanfarin ár eru neytendur farnir að vera sífellt meðvitaðri um innihaldsefni í húð- og snyrtivörum. Úrvalið hefur heldur aldrei verið meira og aukinn áhugi er á aðgengi að skýrum upplýsingum um vörurnar sem eru til sölu. 

„Það er mikill heiður fyrir Lyfju að fá tilnefningu til European Natural Beauty Awards og að okkar vegferð veki athygli utan landsteinanna. Við tökum þessari viðurkenningu sem hvatningu til að áfram á sömu braut, en undanfarin ár höfum við tekið stefnumiðuð skref í átt að því að auka lífsgæði með bættri heilsu með vöruúrvali okkar, þjónustu og markaðsskilaboðum ,“ segir Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og vörusviðs og stafrænna lausna hjá Lyfju í fréttatilkynningu. 

Heimur innihaldslýsinga getur verið flókinn og illskiljanlegur fyrir hinn almenna neytenda en Lyfja hefur lagt áherslu á að fræða og votta hreinar vörur í hillum verslanna og á vefsíðu sinni. Eins vinnur Lyfja að því að auka aðgengi að hreinum, náttúrulegum og lífrænum vörum með Heilsuhúsinu sem er inn í stærstu verslunum þeirra. 

Verslun Lyfju á Smáratorgi.
Verslun Lyfju á Smáratorgi.
Úrvalið af snyrtivörum hefur aldrei verið meira og fræðsla um …
Úrvalið af snyrtivörum hefur aldrei verið meira og fræðsla um innihaldsefni mjög þörf.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál