Detox-safi Jennifer Aniston

Jennifer Aniston eldist með eindæmum vel en hún hefur löngum verið lofuð fyrir afar fallegan líkamsvöxt. Nýlega gaf leikkonan upp lykilinn að nýja detox-kúrnum sínum sem inniheldur galdradrykk að hennar sögn. Í drykkinn setur setur stjarnan fullt af fersku lífrænu grænmeti ásamt rauðrófum, gúrkum, spínati, hvítlauk, gulrótum, selleríi og grænkáli.

Næringarfræðingur Jeanette Jackson tekur undir að drykkurinn sé mjög hollur. „Basískt grænmeti kemur í veg fyrir að hún blási út. Það kemur jafnvægi á vatnsforða líkamans og heldur jafnvel skapsveiflum í lágmarki,“ segir hún við breska tímaritið Look. Aniston drekkur drykkinn einu sinni í viku og segir næringarfræðingurinn það hæfilegan skammt. Hún heldur áfram um ágæti drykkjarins: „Basísk fæða hjálpa til að hreinsa blóðið. Sellerí og gulrætur eru uppfullar af kalínfrumefninu og natríum en grænkál og steinselja hjálpa heilastarfseminni.“

Vinir Aniston eiga ekki orð yfir hvað leikkonan lítur vel út þessa dagana. „Jen lítur ótrúlega vel út núna,“ er haft eftir þeim í tímaritinu Look. „Það er að hluta til vegna detox-kúrsins en það er aðallega vegna þess hve hamingjusöm hún er með Justin.“ Justin Theroux er kærasti Jennifer Aniston.

Parið var nýlega í rómantískri ferð í París. Fregnir herma að þau séu mögulega í giftingarhugleiðingum en þau hafa nú verið saman í rúmt ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda