Skortir þig hugrekki til að vera þín eigin hetja?

Skortir þig kjark?
Skortir þig kjark?

Skortir þig hugrekki til að vera þín eigin hetja? Taktu prófið og komstu að því hvort þú þarft að draga fram ofurhugann innra með þér.

1. Áttu þér mörg markmið og óskir sem þú þorir ekki að framkvæma?
2. Óttastu að segja nei af tillitssemi við aðra?
3. Leiðist þér oft?
4. Langar þig stundum að gera eitthvað óvanalegt en lætur ekki verða af því?
5. Dreymir þig dagdrauma um sjálfa þig sem ofurhetju en líður eins og Bjössa bollu?
6. Langar þig að gera hreyfingu að lífsstíl en gerir ekkert í því?
7. Ertu háð sykri, gosi eða brauði?
8. Verðurðu auðveldlega áhyggjufull?
9. Hugsarðu oft neikvæðar hugsanir á borð við: „Þetta þori ég ekki“ eða „Þetta get ég ekki“?

Ef þú svarar aðeins tveimur af þessum níu spurningum játandi þarftu að auka þér kjark. Þín bíða góðar upplifanir. Hertu þig upp og skoðaðu í verkfærakassann svo þú getir horfst í augu við ljónin sem standa í vegi fyrir hamingju þinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál