Sæl Inga.
Átt þú einhver góð ráð fyrir mig, þar sem ég er núna að fara í mikla prófatörn? Öll ráð vel þegin!
Með fyrirfram þökk,
Anna
Kæra Anna.
Takk fyrir spurninguna.
Hér koma nokkur ráð sem geta gagnast þér vel og gott er að huga að.
Svefn:
Svefn er alltaf mikilvægur, það vita allir, en ef einhvern tíma er ástæða til að huga vel að góðum nætursvefni, þá er það í prófatörnum. Þetta hljómar kannski eins og gömul lumma, en það er fátt sem skiptir meira máli en að fá nægan svefn. Margir hafa reynt að vaka heilu næturnar og lesa, en flestir viðurkenna eftir á að það hafi í raun ekki skilað neinu nema aukinni þreytu og lélegri einbeitingu og úthaldi. Rannsóknir hafa sýnt að streita eykst ef svefninn er ekki nægur og taugakerfið fer á tæpasta vað. Flestir þurfa 7-8 tíma nætursvefn til að halda fullri orku og þreki.
Hugarfar:
Það er mikilvægt að tapa ekki lífsgleðinni í prófunum og hugsa jákvætt í eigin garð. Það skilar engu að draga sig niður með neikvæðum hugsunum og niðurrifi. Á þessum tímapunkti skiptir máli að gera sitt besta, lesa og læra eins mikið og hægt er, en það eru takmörk fyrir öllu. Auðvitað skiptir mestu máli að læra jafnt og þétt alla önnina og ef það hefur ekki gengið sem skyldi, þá er bara hægt að gera betur næst. Það er um að gera að klappa sér á bakið og vera dugleg(ur) að koma auga á það sem vel er gert. Miklu skiptir að átta sig á að við gerum alltaf eins vel og við getum og ef það er ekki nóg þá er bara að reyna aftur. Við getum ekki gert meira en okkar besta.
Hreyfing:
Það er um að gera að fá útrás og hressa sig við með líkamsrækt. Þeir sem æfa íþróttir af kappi ættu að halda sínu striki en kannski draga heldur úr ákefðinni. Fyrir alla hina eru gönguferðir, sund og alls konar leikfimi af hinu góða og ferska loftið gefur byr í seglin.
Hvíld og slökun:
Það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að sitja lengi við og halda einbeitingunni. Flestir ráða við u.þ.b. 90 mínútna tarnir. Það er um að gera að taka stutt hlé, standa upp og liðka sig, fá sér jafnvel smá í svanginn eða rölta út fyrir vegg og draga djúpt andann. Markviss slökun af einhverju tagi endurnýjar orkuna frábærlega vel. Það er um að gera að verða sér úti um einhver hjálpartæki, s.s. geisladiska með slökunartónlist eða annað sem hentar. Hægt er að kaupa slökunardiska þar sem fólk er leitt í gegnum slökun. Talið er að 10 mínútna djúp slökun geti komið í stað klukkustundar svefns.
Næring:
Margir kannast við að detta í mikla óhollustu í mataræði í próftörnum. Fyrir þessu eru kannski margar skýringar. Það getur verið tímaskortur, vani eða hreinlega lífeðlisfræðilegt vandamál. Þegar við erum undir álagi kallar líkaminn á meiri sykur. Oftast er þetta þó einhvers konar blanda af þessu öllu saman. Tímaskortur hrjáir auðvitað marga, en það er oft ekkert tímafrekara að fá sér hollan mat en óhollan. Málið er líka að forgangsraða rétt, lítið gengur ef líkamann vantar eldsneyti í átökin. Það er auðvitað um að gera að birgja sig upp af allskonar gæðafæðu áður en törnin hefst og þurfa ekki að vera endalaust að hlaupa út í búð eða nota tímaleysi sem afsökun fyrir óhollustunni sem er kannski hendi næst.
Hér koma nokkrar hugmyndir:
- Kaupið nóg af eggjum, það er gott og fljótlegt að grípa í þau og auðvelt að matbúa.
- Það er hægt að fá tilbúin grænmetisbuff í öllum stórmörkuðum. Skellið þeim í frystinn og notið eftir hendinni.
- Gróft pasta, t.d. úr spelti er fljótlegt að sjóða og það inniheldur mikið af góðri næringu
- Endilega verðið ykkur úti um gæðapróteinduft, t.d. mysuprótein, hrísgrjónaprótein eða hampprótein sem er hægt að nota í orkudrykki. Það tekur stuttan tíma að blanda slíkan drykk.
- Hnetur, möndlur og fræ. Gott að narta í og nota í orkudrykki. Chia-fræ eru algjör snilld.
- Birgið ykkur upp af grænmeti og ávöxtum. Spínat og avókadó er snilld í grænar drykkjabombur. Sniðugt að eiga ferska ávexti ef sykurlöngun lætur á sér kræla.
- Hafragrautur er alltaf þægilegur og um að gera að skella í hann kanel og chia-fræjum.
- Kaupið nóg af gæðabrauði, helst hveiti-, sykur- og gerlausu. Gott að eiga lífrænt hnetusmjör og hummus sem álegg.
- Það eru til alls konar orkustykki, sum góð en önnur ekki. Varið ykkur bara á sykurmagninu í þeim og fjölda aukaefna, passið að lesa vel innihaldslýsingar.
- Bolla- og pakkasúpur fást án óæskilegra aukaefna í heilsubúðum
Ef þið eruð ekki að læra heima, heldur á bókasafni eða á lesstofu, þá er um að gera að útbúa sér gott og fjölbreytt nesti. Það er hægt að hræra sér orkudrykki, skella þeim í hitabrúsa með smáklaka og þá helst drykkurinn kaldur fram eftir degi. Útbúið ykkur pastasalat úr grófu pasta, samlokur úr gæðabrauði og ommelettur (smakkast vel kaldar). Hafið með ykkur ávexti og hnetur, fræ eða möndlur. Ýmsar gerðir af hnetum og möndlum eru ofurfæða og sérstaklega í próftörnum. Uppfullar af góðum olíum sem eru nauðsynlegar fyrir heilabúið og próteinum sem er grunnbyggingarefnið okkar og orkugjafi.
Endilega reynið að halda sykurneyslu í lágmarki sem og kaffidrykkju. Passið að drekka nóg vatn eða jurtate og grænt te virkar vel.