10 kg á 10 vikum

Sigríður Ásta Hilmarsdóttir.
Sigríður Ásta Hilmarsdóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sigríður Ásta Hilmarsdóttir er 10 kg léttari eftir að hafa tekið þátt í heilsuferðalagi Smartlands Mörtu Maríu og Hreyfingar. Hún segist vera full af lífsorku og gleði og líf hennar hafi tekið jákvæðum breytingum.

„Fyrir rúmri viku var okkur í heilsuferðalaginu boðið í Bláa Lónið í betri stofuna. Speedo styrkti okkur með sundfatnaði. Hélt að ég gæti ekki litið vel út í sundbol en við fengum bol úr nýju aðhaldslínunni þeirra og hann heldur svakalega vel að. Lenti svo í því að biðja um stærra númer en ég þurfti en það hefur yfirleitt verið á hinn veginn.

Betri stofan í Bláa Lóninu var algjör draumur. Langþráð afslöppun og dekur. Þetta var svo nice að við tímdum varla að fara í lónið. Fengum prufur og maska úr Bláa Lóns línunni og húðin er búin að vera svakalega mjúk síðan. Hef alltaf verið með venjulega til feita húð og aldrei þurft að hugsa mikið um að bera krem á mig en eftir að ég fór að æfa á hverjum degi og baða mig einu sinni til tvisvar á dag fór húðin að þorna mikið. Það var því mikill munur að fá góð krem.

Nú þegar átakið er búið þarf að byrja að rækta sjálfsagann og skipuleggja hvernig ég ætla að halda áfram á eigin fótum,“ segir Sigríður Ásta.

Sigríður Ásta Hilmarsdóttir.
Sigríður Ásta Hilmarsdóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda