Leikkonan Shannen Doherty sem þekktust er fyrir leik sinn í þáttunum Beverly Hills 90210 greindist með brjóstakrabbamein í mars 2015. Hún hefur talið opinskátt um baráttu sína við sjúkdóminn og birti á dögunum tilfinningaþrungnar myndir af sér á Instagram-síðu sinni þar sem hún var að raka af sér hárið.
Doherty greindi frá baráttu sinni við sjúkdóminn í ágúst í fyrra eftir að vefurinn TMZ birti skjöl sem gáfu í skyn að ekki væri allt með felldu. Í þeim var Doherty að kæra fyrrum starfsmann sinn sem borgaði ekki tryggingarnar hennar sem leiddi til þess að hún komst ekki undir læknis hendur. Hún segir krabbameinið hafi dreift úr sér á þeim tíma sem hún var ótryggð.
Á vef Cosmopolitan er vísað í viðtali Doherty í þættinum The Dr. Oz Show í febrúar en þá sagðist leikkonan ekki vera búin að ákveða hvaða aðgerð hún færi í. „Þetta eru bara brjóst. Ég elska þau og þau eru falleg en eins og hlutirnir eru núna vil ég frekar vera á lífi og eldast með manninum mínum,“ sagði Doherty.
Hér að neðan má sjá myndirnar af Doherty sem hafði móður sína og vinkonu sér til halds og traust.