Skaðinn skeður ef Eyja Bryngeirsdóttir nær ekki að nesta sig upp fyrir daginn. Þess vegna þýðir ekkert annað en gott skipulag. Hún er búin að missa átta kíló. Hún er ein af þeim sem taka þátt í Lífsstílsbreytingu Smartlands og Sporthússins undir stjórn Lilju Ingvadóttur einkaþjálfara.