Samkvæmt Womans Health eru nokkrar leiðir sem hægt er að fara eftir til að auka ánægjuna við sjálfsfróun fyrir konur.Samkvæmt greininni er engin ein leið rétt leið þegar kemur að sjálfsfróun kvenna. Hvort sem þú notar hendurnar, púða, rennandi vatn eða leikföng þá er allt í boði.
Eins er talað um að hversu oft þú stundar sjálfsfróun er undir þér komið. Einu sinni á dag, einu sinni í viku eða einu sinni í mánuði. Hafðu það einu sinni á ári ef þú ekki nennir meiru. En mundu að það er heilbrigt að kunna á eigin líkama og sjálfsfróun losar stress og gefur þér vellíðan.
Hér eru nokkrar leiðir til að auka ánægjuna við sjálfsfróun samkvæmt tímaritinu.
Notaðu spegil
Það er einstök upplifun að horfa á sjálfan sig fróa sér. Þú færð betri þekkingu á hvernig þú lítur út þarna niðri og uppgötvar fljótt að þú ert fullkomin eins og þú ert. Sannkallaður frumskógur sem átt skilið tíma til að kanna.
Gerðu umhverfið fallegt
Það getur munað miklu þegar kemur að ánægjunni við sjálfsfróun að taka sér tíma í verkið og gera umhverfið hlýlegt og fallegt. Kveiktu á kertum og hafðu huggulegt í kringum þig.
Ímyndaðu þér
Allir eiga sér áhugaverða staði til að fara á við sjálfsfróun. Hvað vekur gyðjuna í þér? Leyfðu þér að dreyma og kanna ótroðnar slóðir. Það er ekkert bannað við það.
Notaðu sleipiefni
Margir nota sleipiefni við kynmök. Þú þarft að nota sleipiefni við sjálfsfróun einnig. Kauptu þér allskonar efni, með myntu, jarðaberjum og aukaefnum sem gleðja.
Notaðu leikföng
Þú mátt eiga allskonar leikföng að nota í þínum leiktíma. Egg geta verið stórkostleg, sem og víbratorar í ólíkum formum og lögun. Prófaðu þig áfram. Þá muntu vita hvað hentar þér best.
Lærðu á þig
Eitt mikilvægasta atriðið við sjálfsfróun er að þá ertu með þér. Þú þarft að bera ábyrgð á þinni hamingju í kynlífinu. Hvernig ætlarðu að taka ábyrgð á hlut sem þú ekki kannt fullkomlega á? Prófaðu þig áfram, stattu í valdinu og leiktu þér með þér!