„Þessa æfingalotu er gott að gera þrisvar sinnum í viku, þrjár umferðir í senn til þess að styrkja rass- og lærvöðva. Hver æfing er gerð í 60 sek. Vandaðu þig við að gera æfingarnar eins vel og þú getur frekar en að gera þær of hratt. Byrjaðu strax í dag og þú finnur mun á styrknum í neðri hlutanum eftir nokkrar vikur,“ segir Anna Eiríksdóttir leikfimisdrottning með meiru.
Anna deilir æfingunum sínum reglulega á Smartlandi en hún heldur úti vefnum annaeiriks.is.