Leikkonan Drew Barrymore segir að þjálfarinn hennar, Marnie Alton, hafi hjálpað henni, heilað hana og hvatt hana til þess að halda áfram.
Barrymore segir Alton ekki bara vera þjálfarann sinn heldur líka kæra vinkonu. Alton hjálpaði henni að komast í form fyrir hlutverk sitt í þáttunum Santa Clarita Diet.
„Á hverju vori þegar ég byrjaði að æfa til þess að verða Sheilda Hammon var það Marnie sem hjálpaði mér. Ég missti 9 kíló og æfði eins og mamma. Hún er líka mögnuð manneskja,“ skrifar Barrymore í færslu sinni sem hún birti í tengslum við heilsuviku á Instagram.
Barrymore hefur átt í stríði við vigtina á síðustu árum og hefur viðurkennt að hún hati að þurfa að fara reglulega á sérstakt mataræði til að grenna sig.