Líkamsræktarsnillingurinn Telma Matthíasdóttir er dugleg að taka heimaæfingar þessa dagana. Þótt Telma sé með vel útbúna heimarækt í bílskúrnum sínum er hún dugleg að koma með hugmyndir fyrir fylgjendur sína. Um helgina notaði hún pott í heimaæfinguna.
Það getur verið mjög erfitt að halda hlutunum spennandi og ferskum þegar æft er heima og því þjóðráð hjá Telmu að notast við pottinn.
Telma notaði pottinn á ýmsa vegu eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.