Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Aron Can eru meðal þeirra sem stíga fram í myndbandi Eigin kvenna og segjast trúa þolendum kynferðisofbeldis.
Hlaðvarpsþættirnir Eigin konur, sem Edda Falak og Fjóla Sigurðardóttir stýra, gáfu út myndband nú í morgun þar sem þjóðþekktir einstaklingar stíga fram og sýna þolendum ofbeldis stuðning.
Myndbandið er gefið út í tengslum við #MeToo bylgjuna sem hófst á Íslandi í síðustu viku. Fjöldi fólks hefur stigið fram á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum og greint frá kynferðisofbeldi sem það hefur orðið fyrir.