„Bakkus var stóra ástin í lífi mínu“

Harpa Diego í miðjunni ásamt Tinnu Guðrúnu og Hlyni Kristni …
Harpa Diego í miðjunni ásamt Tinnu Guðrúnu og Hlyni Kristni Rúnarssyni stjórnendum Það er von.

Harpa Diego hefur gengið hlykkjóttan veg í gegnum lífið en stendur alltaf upp aftur. Harpa er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Það er von. Í þættinum segir hún sögu sína sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Harpa átti góða æsku en þegar hún var 11 ára lent hún í nauðgun, fyrsta stóra áfallinu, sem breytti öllu. „Þetta var leyndarmálið mitt og ég sagði engum frá,“ segir Harpa. 

Harpa flutti til ömmu sinnar eftir nauðgunina og leitaði huggunar í mat. Hún talar um að hafa verið feitasti unglingurinn í skólanum. Sjálfsmynd hennar var brotin og henni fannst hún vera ógeðsleg og vildi helst vera með ömmu sinni og eldra fólki sem var gestkomandi á heimili þeirra. Harpa byrjaði seint í neyslu hugbreytandi efna en áfengisneyslan hófst þegar hún var 28 ára, fram að því var hún fyrirmyndarhúsmóðir með þrjú börn og gift æskuástinni. „Hann var alkóhólisti sem byrjaði að drekka mikið eftir vinnuslys og þá byrjaði ofbeldi líka. Ég ákvað einn daginn að prófa að drekka með honum, þá horfði ég í spegil í fyrsta skipti og hugsaði með mér að ég væri kannski svolítið sæt,“ segir Harpa. 

Á einu ári, eftir skilnað, fór Harpa úr því að vera þessi fyrirmyndarhúsmóðir í það að missa börnin frá sér og Bakkus átti hana. „Bakkus var stóra ástin í lífi mínu,“ segir Harpa, sem fór einu sinni á Vog en féll stuttu eftir það. Eftir að hafa misst frá sér börnin reyndi Harpa nokkur sjálfsvíg og segir Guð vaka yfir sér. „Ég man alltaf eftir því þegar það var verið að berja mig, þá tuggði ég 23. Davíðssálm í huganum.“

Leiðin lá beint niður á við, hún fór í harða neyslu, vændi, stundaði erótískt nudd og lenti í hræðilegum áföllum. Harpa tók mikla meðvirkni með sér út í lífið og kunni illa að setja fólki mörk. „Eftir eina meðferð flutti ég á Dyngjuna og í fór í AA, þar varð ég ástfangin. Það leið ekki á löngu þar til hún flutti til mannsins þrátt fyrir ráðleggingar forstöðukonu Dyngjunnar um að gera það ekki. Harpa og kærastinn féllu í djúpa neyslu stuttu síðar á heimili hans. Harpa segir frá því hvernig neyslan þróaðist eftir þetta: „Hann kom einn daginn með poka af sprautum úr apótekinu og fór að sprauta sig, ég bað hann að sprauta mig líka. Þessi maður beitti mig miklu líkamlegu ofbeldi og vaknaði ég þrisvar í öndunarvél eftir árásir af hans hálfu og vart hugað líf, í hvert skipti sat pabbi hjá mér.“ 

Í þættinum segir hún frá óhugnanlegum atvikum þegar hún bjó með manni á gistiheimili í Reykjavík. „Þarna er mér byrluð ólyfjan, ég fór að slefa og þá var ég tjóðruð upp. Ég sá hann svo taka við peningum frá venjulegum mönnum í jakkafötum. Þarna var mér misþyrmt, þeir gerðu við mig það sem þeim þóknast, jafnvel lamin. Stundum var einn, stundum tveir menn og einu sinni þrír. Ég var alltaf bundin. Ég var svo skilin eftir, bundin og blóðlaus í höndum. Ég þurfti að míga og skíta á mig, þetta var það langur tími, meðan hann fór að djamma fyrir peninginn,“ segir Harpa. 

Líf Hörpu hefur einkennst af stórum áföllum en hún náði sjálf 11 ára edrúmennsku, á þeim tíma bjó hún í 10 mánuði með son sinn í Kvennaathvarfinu. Hún féll eftir 11 ár. „Eftir tvær til þrjár helgar var ég komin í leigubíl í apótek að kaupa sprautur og komin á sama stað, þetta fall varði í 14 mánuði.“

Hægt er að hlusta á Það er von á hlaðvarpsvef mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál