Leikkonan Catherine Zeta-Jones er stödd í fríi um þessar mundir. Það kemur þó ekki í veg fyrir að hún haldi áfram að hreyfa sig. Í vikunni birti hún myndband af sér renna í gegnum jógaflæði um borð í snekkju.
Zeta-Jones og eiginmaður hennar, Michael Douglas, skelltu sér til Evrópu í júlí og snekkja þeirra nú fyrir utan strendur Ibiza.
Í myndbandinu tók leikkonan góða kviðæfingu þar sem hún fer úr jógastöðunni „hundinum sem horfir niður“ yfir í planka.
Jógakennarinn Viviane Thibes, sem er gift Cameron Douglas, syni eiginmanns Zeta-Jones, var yfir sig hrifin í athugasemd undir myndbandinu: „Frábær leið til að halda sér í formi: synda, gera jóga og teygja. Þú ert innblástur,“ skrifaði Thibes.