Rankaði við sér í fangaklefa

Hlynur Kristinn Rúnarsson og Tinna Guðrún stjórna hlaðvarsþættinum Það er …
Hlynur Kristinn Rúnarsson og Tinna Guðrún stjórna hlaðvarsþættinum Það er von. Saga Nazari var gestur þeirra þessa vikuna.

Saga Nazari upplifði mikið ofbeldi í æsku. Móðir hennar eignaðist hana þegar hún var aðeins 17 ára með fyrstu ástinni sinni, eldri manni sem er strangtrúaður múslimi. 

Saga, sem er 22 ára í dag, bjó með foreldrum sínum í Noregi fyrstu ár ævi sinnar og flökkuðu þær mæðgur á milli kvennaathvarfa á flótta untan föður Sögu sem beitti þær ofbeldi. Ofbeldið sem Saga horfði upp á og afleiðingarnar hafa haft mikil áhrif á líf hennar. 

Saga þróaði með sér fíknisjúkdóm en hefur verið án hugbreytandi efna í tæp fjögur ár.
Neyslusaga Sögu hófst þegar hún var aðeins 13 ára. „Ég var með fjölskyldunni á gjörgæslunni þar sem átta ára frænka mín var tekin úr sambandi og dó. Það var mikið áfall að sjá hana skipta um lit og breytast þegar hún var dáin,“ segir Saga um undanfara þess að hún drakk í fyrsta skipti.

Hún segir okkur frá þráhyggjunni sem kom í raun strax án þess að nokkur gerði sér grein fyrir og varð neyslan stjórnlaus frá fyrsta degi, ef svo má að orði komast. Áföll í lífi Sögu eru ótal mörg og var hún á flótta undan tilfinningum sínum. Hún notaði hugbreytandi efni daglega í mörg ár. Hún segir frá atviki í lífi sínu frá því hún var unglingur og einu af því skiptum sem henni var byrluð ólyfjan.

„Ég rankaði við mér í fangaklefa, vissi ekki neitt og mundi ekkert.“ Hún segir frá því hvaða áhrif einangrun í þessum klefa hafði á hana, hún gerði tilraun til að svipta sig lífi þar auk þess að upplifa algjört vonleysi en hún var undir lögaldri á þessum tíma og hennar réttur ekki virtur.

„Ég er ekki að tala illa um lögregluna almennt en þarna var brotið á mér,“ segir Saga. Hún gerði tilraun til að vera venjuleg og gera það sem venjulegt fólk gerir en fannst hún ekki passa inn og fannst hreinlega ekki gaman. Aðeins 19 ára gömul var Saga komin á götuna, hún er móður sinni afar þakklát í dag fyrir að hafa tekið þá erfiðu ákvörðun að vísa henni út því það varð til þess að Saga þurfti að horfast fyrr í augu við sjúkdóminn sem hún berst við, fíknisjúkdóm.

Þáttinn má hlusta á í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál