Næring er fjölþætt hugtak. Bæði menn og dýr næra sig með matvælum en það er líka hægt að næra hug sinn og sál. Að rækta sinn garð er máltæki sem gjarnan er notað yfir sjálfsumhyggju einstaklinga. Guðni hvetur þig til að hlúa að sjálfum þér og næra bæði líkama og sál.
„Færðu þig nær þér með því að næra þig. Næringin er gríðarlega merkileg athöfn. Nærðu tilgang þinn og vitund þína,“ segir Guðni.
Við bjóðum þér í 14 daga ferðalag þar sem þú þróar þína velsæld út frá nokkrum einföldum skrefum. Njóttu vegferðarinnar. Vertu ást.