Guðni Gunnarsson, leiðbeinandi og lífsþjálfi hjá Rope Yoga-setrinu, hvetur þig til að hugsa um orðin.
„Að vera eða vera ekki er spurningin,“ segir Guðni og vitnar í sjálfan William Shakespeare. Hann segir að orðin skipti máli. Í næstu 14 daga ætlar hann að skoða orðin og vald þeirra.
„Við þurfum að skoða hugtök. Erum við viljandi verkfæri eða óviljandi slys,“ segir hann.
Við bjóðum þér í 14 daga ferðalag þar sem Guðni Gunnarsson aðstoðar þig við að finna hamingjuna og njóta hennar. Leyfðu þér það. Þú átt það inni hjá sjálfum/ri þér.