Guðni Gunnarsson, eigandi Rope Yoga-setursins, býður þér í 14 daga ferðalag þar sem þú mótar þig og þína hamingju út frá nokkrum einföldum skrefum. Leyfðu þér að njóta hamingjunnar með því að tileinka þér þessi skref.
„Erum við hér eða erum við þar? Hvað er það að vera til staðar í eigin tilvist. Hvað er það að vera ekki í sinni tilvist? Við vitum alveg muninn. Þegar við erum þá erum við í augnablikinu,“ segir Guðni.