Guðni Gunnarsson, eigandi Rope Yoga-setursins, býður þér í 14 daga ferðalag þar sem þú mótar þig og þína hamingju út frá nokkrum einföldum skrefum. Leyfðu þér að njóta hamingjunnar með því að tileinka þér þessi skref.
„Allt sem við veitum athygli vex og dafnar,“ segir Guðni og nefnir að það sé þannig að ef fólk festist í neikvæðni þá vaxi neikvæðnin mikið.
„Flest erum við að hugsa um það sem við viljum ekki. Við köllum þetta áhyggjur. Þegar við höfum áhyggjur erum við að veita áhyggjunum athygli og þá vaxa þær,“ segir hann.