Guðni Gunnarsson, eigandi Rope Yoga-setursins, býður þér í 14 daga ferðalag þar sem þú mótar þig og þína hamingju út frá nokkrum einföldum skrefum. Leyfðu þér að njóta hamingjunnar með því að tileinka þér þessi skref.
„Að vilja sig eða vilja sig ekki,“ segir Guðni og bendir á að vilji sé vald.
„Ef við erum í vitund getum við valið hvernig við breytum okkur. Að búa yfir þessu valdi.
Að vilja sig ekki er fjarvera. Það er að vera ekki til staðar í eigin tilvist.“