Ljósið hjálpaði Katrínu að finna hamingjuna

Katrín Júlíusdóttir, rithöfundur og fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar, er þakklát hlýjunni sem tók á móti henni þegar hún greindist með sortuæxli í eyra í fyrra. Hún sigraðist á meininu og fékk mikinn stuðning í Ljósinu sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess. Ljósið hjálpaði Katrínu að finna aftur hamingjuna og segir að það sé mikilvægt fyrir fólk sem glímir við erfið veikindi og eftirköst þeirra að hafa eitthvað fyrir stafni. 

„Við þekkjum öll líkamann okkar best. Ég var farin að finna fyrir óþægindum og vissi að það væri ekki allt eðlilegt. Það kom mér samt mikið á óvart að þetta var í raun sortuæxli því það leit ekki þannig út. Blettirnir voru ekki svo dökkir og mér datt þetta ekki í hug. Þetta var áfall fyrir mig og fjölskylduna,“ segir Katrín. 

Eftirköstin voru erfið andlega

Katrín fékk þær góðu fréttir í desember á síðasta ári að hún hefði læknast og að meinið væri farið. 

„Ég átti góðan vin sem hafði farið í Ljósið. Hann hvatti mig áfram og ég ákvað að fara en á þeim tíma var ég að fást við eftirköst. Eitt eru veikindin sjálf, en svo er að takast á við þau. Lengi mátti ég heldur ekki hreyfa mig mikið því það var notuð húð af líkamanum til að byggja upp eyrað. Á meðan það gréri var ég í rauninni í algjörri kyrrsetu.

Ég fann fyrir mikilli depurð á þessum tíma og ég nýtti mér mest andlega stuðninginn sem Ljósið hefur upp á að bjóða. Það að hafa eitthvað fyrir stafni, vakna á morgnanna og vita að maður á að mæta klukkan eitthvað ákveðið breytir svo miklu. Ég var komin með mikinn félagskvíða og ég þurfti á því að halda að komast út úr húsi,“ segir Katrín en í Ljósinu er boðið upp á sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, sálfræðiráðgjöf og jafningjahópa. 

Var orðlaus yfir hlýju starfsfólksins

Katrín var dugleg að sækja jafningjahóp í Ljósinu þar sem hún hitti reglulega fólk í sömu sporum og hún sjálf. 

„Mér var mætt þarna af svo mikilli hlýju að ég átti ekki til orð. Ég hitti reglulega yndislegan hóp af fólki í Ljósinu sem var að ganga í gegnum það sama og ég. Svo var líka allskonar fleira í boði eins og núvitundarnámskeið sem ég nýtti mér og fannst mjög gott. Ég fann loksins gleðina sem mér fannst ég hafa verið án svo lengi. Depurðin, óvissan og þessar þungu tilfinningar taka svo mikið á. Ljósið létti mikið á mér því þarna er samankomið fólk sem skildi nákvæmlega hvað ég var að ganga í gegnum.“

Þakklæti og tilhlökkun yfir framtíðinni efst í huga

Þegar blaðamaður hafði samband við Katrínu var hún á leið út á flugvöll. Hún var með vegabréfið í höndunum og segir frá því að myndin í vegabréfinu hafi verið tekin nokkrum mánuðum eftir greininguna.

„Þegar ég horfi á þessa konu þá fæ ég sting í hjartað því ég sé djúpt í augunum á henni hvað hún er hrædd og er heltekin af óvissunni. Það var svo þungt yfir mér á þessum tíma en ég er ótrúlega þakklát fyrir að vera á góðum stað í dag. Það eru allir sem þekkja einhvern sem hefur verið með krabbamein og þetta tekur mikið á fyrir fjölskyldur. Við þurfum öll stuðning,“ segir Katrín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál