Heimili Rutar Káradóttur innanhússarkitekts birtist á síðum Bo Bedre á dögunum, sem er merkilegt því íslensk heimili þykja oft ekki nógu smart. Íslenski blaðamaðurinn Gerður Harðardóttir tók innlitið fyrir Bo Bedre og með henni var ljósmyndarinn Trine Thorsen.
Heimilið er hið glæsilegasta. Eldhúsið er opið inn í stofu með eyju og góðu skápaplássi. Stórir gluggar fá að njóta sín með útsýni yfir Elliðaárdalinn. Jarðlitirnir eru í forgrunni á heimilinu sem er hið glæsilegasta. Í húsinu er heimaspa sem státar af heitum potti, arni og þægilegri hvíldaraðstöðu.
HÉR má sjá heimilið í heild sinni.