Við Brekkuás í Garðabæ stendur glæsilegt 372 fm einbýli með útsýni út á Bessastaði, Keili og Helgafell. Hallur Kristvinsson arkitekt hannaði húsið en lóðin var hönnuð af Þráni Haukssyni.
Húsið er sérstaklega vandað en allar innréttingar þess eru sérsmíðaðar. Eignamiðlun er með húsið á sölu. HÉR er hægt að sjá fleiri myndir.