Í tilefni útgáfu nýja IKEA-vörulistans brá fyrirtækið á leik. Dagana 30. ágúst til 2. september gat fólk látið mynda sig í stofunni sem er á forsíðu vörulista IKEA í ár. Jón Fannar Magnússon og Elín Svavarsdóttir tóku leikinn alla leið og stillti sá fyrrnefndi sér upp á nærbuxunum einum fata. Það er því ekki hægt að segja annað en það hafi verið heimilislegt hjá þeim í IKEA.
Nú er búið að birta allar myndirnar á facebooksíðu IKEA og þær myndir sem fá flest „like“ vinna til veglegra verðlauna. Auk allt að 100 þúsund króna inneignar í IKEA fá sigurvegararnir sína eigin einstöku útgáfu af vörulistanum með myndinni sinni á forsíðunni. 2. sæti fær 50.000 króna inneign og vörulista með eigin mynd og 3. sæti 30.000 króna inneign og vörulista með eigin mynd. 4.-10. sæti 10.000 króna inneign og vörulista með eigin mynd.