Hausttískan í hönnun kallar á risastórar ljósakrónur. Þær keyra upp „wow-þáttinn“ á hverju heimili og setja mikinn svip á rýmið. Auk þess verður æ vinsælla að setja tvö stór ljós saman yfir borðstofuborð. Það er hægt að fara bæði ódýrar og rándýrar leiðir þegar ljós eru annars vegar. Það er hægt að kaupa bastkörfu á nytjamarkaði, sprauta hana með spreybrúsa heima hjá sér, snúa henni á hvolf og setja ljósaperu í ef fólk vill búa til stemningu. En svo er hægt að fara alla leið og kaupa sér risaljós úr EPAL.