Íslenskur hönnuður, Kristjana S. Williams, er að gera allt vitlaust í Bretlandi en umfjöllun um einstök verk hennar hefur birst í ótal blöðum eins og sjá má í myndasyrpunni sem fylgir þessari frétt.
Kristjana er útskrifuð sem grafískur hönnuður frá Central St Martin´s en tvítug opnaði hún verslunina Beyond the Walley þar sem hún kom vöru annarra hönnuða á framfæri og gekk sá rekstur afar vel. Fyrr á þessu ári ákvað Kristjana að opna sitt eigið hönnunarstúdíó, KSW studio og einbeita sér að eigin verkum. Segja má að það hafi verið rétt ákvörðun.
„Þegar ég byrjaði að einbeita mér að mínum verkum var eins og það yrði einhver sprengja og það virðist ekkert lát ætla að verða á verkefnum,“ segir Kristjana þegar Smartland nær af henni tali. „Ég hef síðustu árin haft lítinn tíma fyrir það sem ég vildi gera sjálf.“
Verkefnin eru afar fjölbreytt. Um síðustu helgi fylgdi sérstakt jólablað Sunday Times, Liberty, en Kristjana hannaði forsíðu blaðsins. Þá hefur hún hannað fatnað, heimilisvöru og efni þar sem ótrúlegt töfralandslag og dýr eru í aðalhlutverki.
„Það eru þó grafísk verk eftir mig sem eru að vekja hvað mesta athygli núna en þau eru seld í takmörkuðu upplagi. En síðan eru líka hnattlíkön, veggfóður, púðar og fleira til sem hefur verið vinsælt.“
Af nýlegum verkefnum Kristjönu má nefna stór vegglistaverk sem gerð eru fyrir London Design Festval, einkasýningu í Outline Editions´temporary gallerí í Soho og þá hefur hún verið í samstarfi við hinn þekkta húsgagnaframleiðanda George Smith og veggfóðursfyrirtækið Cole & Son.