Holster-vestið fær hönnunarverðlaun

Að mati dómnefndar er hið stórsniðuga Holster vesti þeirra Sigga …
Að mati dómnefndar er hið stórsniðuga Holster vesti þeirra Sigga Odds og Bóasar Kristjánssonar Vara ársins.

Árleg vöruhönnunarverðlaun tímaritsins Reykjavík Grapevine í samstarfi við  Hönnunarmiðstöð Íslands voru afhend í þriðja sinn í dag við hátíðlega athöfn á Icelandair Hotel Reykjavík Marina. Torg í biðstöðu, Ostwald Helgason, Kría Jewellery og Holster hlutu verðlaunin að þessu sinni, í flokkunum verkefni ársins, tískuhönnun ársins, vörulína ársins og vara ársins. Við tilefnið var einnig dagskrá HönnunarMars 2013 kunngerð, en hún birtist í marstölublaði Reykjavík Grapevine sem kom á göturnar sama dag.

Að mati dómnefndar er hið stórsniðuga Holster vesti þeirra Sigga Odds og Bóasar Kristjánssonar Vara ársins. Rökstyður dómnefnd val sitt með þeim rökum að vestið sé „hágæðavara sem hefur jafnframt skýrt og mikið notagildi—praktísk lausn sem hentar bæði til leikja og starfa.“ Varan er jafnframt talin vera „úthugsuð, allt frá hönnun til framleiðslu, markaðssetningar og sölu.“ 

Vörulína ársins er að mati dómnefndar Cod II frá skartgripamerkinu Kría, sem starfrækt er af Jóhönnu Methúsalemsdóttur, en Cod II er skartgripalína sem er innblásin af þorskbeinum. Segir dómnefnd að línan sé „áhugaverð og fögur túlkun á þorskinum, sem haldið hefur lífi í landsmönnum um áraraðir.“ Nostrað er við öll smáatriði og hönnunin myndar „skemmtilega tengingu við mannslíkamann.“ Eins er Cod II talið til tekna að vera á viðráðanlegu verði sem hentar flestum.       

Verkefnið Torg í biðstöðu, sem starfrækt er af Reykjavíkurborg, var valið Verkefni ársins, en þar eru áhugasamir hvattir og styrktir til að endurskoða samband sitt við nærumhverfið og hafa áhrif á það. „Torg í biðstöðu hefur mikil áhrif á samfélag okkar og sýnir hvernig hönnun og hönnunarhugsun getur haft jákvæð áhrif án mikils kostnaðar eða fyrirhafnar. Þó að álíka verkefni eigi sér stað víða um heim eru fáar höfuðborgir sem hvetja og styrkja slík jafn eindregið og Reykjavíkurborg,“ segir dómnefnd í rökstuðningi sínum, en hún klykkir út með því að áhersla verkefnisins á „framkvæmdir“ sé henni sérstaklega hugleikin.

Verðlaunaflokkurinn Tískuhönnun ársins var svo kynntur til sögunnar í ár, en það var Ostwald Helgason sem hreppti viðurkenningu dómnefndar. Segir dómnefnd að vörulína merkisins hafi til að bera „frábær snið og stórskemmtilega liti,“ auk þess sem hver vörulína þeirra myndi heildstætt safn. „Ostwald Helgason hefur þróast hratt og vel á ákaflega skömmum tíma og við, ásamt afganginum af tískuheiminum, getum ekki beðið eftir því að sjá hvað kemur næst frá þeim.“

Dómnefndin var skipuð Sari Peltonen (fyrir hönd Reykjavík Grapevine), Helga Steinari Helgasyni arkitekt (fyrir hönd Hönnunarmiðstöðvar Íslands), fatahönnuðinum Auði Karítas Ásgeirsdóttir frá versluninni Geysi, Hafsteini Júlíussyni vöruhönnuði og Rúnu Thors, kennara við vöruhönnunardeild LHÍ. Dómnefnd voru settar þær skorður í vali sínu að verðlaunaðar yrðu vörur sem væru raunverulegir og áþreifanlegir hlutur, allt frá keramiki að skartgripum. Skilyrði var og sett um að vörurnar hefðu komið fram árið 2012. Ragnheiður Axel Eyjólfsdóttir, fatahönnuður var dómnefndinni til ráðgjafar.

Verkefnið Torg í biðstöðu, sem starfrækt er af Reykjavíkurborg, var …
Verkefnið Torg í biðstöðu, sem starfrækt er af Reykjavíkurborg, var valið Verkefni ársins, en þar eru áhugasamir hvattir og styrktir til að endurskoða samband sitt við nærumhverfið og hafa áhrif á það.
Ostwald Helgason var valin Tískuhönnun ársins.
Ostwald Helgason var valin Tískuhönnun ársins.
Vörulína ársins er að mati dómnefndar Cod II frá skartgripamerkinu …
Vörulína ársins er að mati dómnefndar Cod II frá skartgripamerkinu Kría, sem starfrækt er af Jóhönnu Methúsalemsdóttur, en Cod II er skartgripalína sem er innblásin af þorskbeinum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda