Við Víðimel í vesturbæ Reykjavíkur er fantaflott 187 fm íbúð í húsi sem byggt var 1946. Innanhússarkitektinn Rut Káradóttir hannaði eldhúsið en í því er hvít sprautulökkuð innrétting með gripum og viðarborðplötu. Úr eldhúsinu er gengið út á suðursvalir.
Það sem er sjarmerandi við íbúðina er hvað mikil litagleði ríkir þar. Grænt Egg eftir danska húsgagnahönnuðinn prýðir stofuna og í bakgrunni er eplagrænn veggur svo dæmi sé tekið.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.