Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir hafa sett glæsihús sitt við Meðalfellsvatn á sölu. Um er að ræða einbýlishús á einni hæð með einstöku útsýni yfir vatnið. Húsið er 231 fm að stærð og teiknað af Alark arkitektastofunni. Húsið var byggt 2006 og eru allar innréttingar frá Axis.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.
Horft úr borðstofunni inn í stofu. Hægt er að opna vel út en gluggarnir ná niður í gólf og hægt er að renna þeim til hliðar.
Stofan og eldhúsið flæða saman í einu rými.
Við húsið er stór og veglegur bílskúr.
Tréverkið í húsinu er vandað og fallegt.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.
Heimilið er fallega innréttað.
Hér er sko aldeilis hægt að hafa það notalegt.
Pallurinn er algert ævintýri.
Gluggarnir ná niður í gólf og hægt er að renna þeim til hliðar.
Hér er sko hægt að slaka vel á.
Eldhúsið og stofan eru saman í einu rými.