Íþróttamaðurinn Patrekur Jóhannesson hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við Blikanes í Garðabæ á sölu. Húsið er 260 fm að stærð og byggt 1967.
Patrekur festi kaup á húsinu 2005 og 2006 var allt endurnýjað. Þá var skipt um innréttingar og gólfefni og stuttu síðar var garðurinn tekinn í gegn.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.
Eldhúsið er vel skipulagt.
Hvít sprautulökkuð innrétting prýðir eldhúsið.
Garðurinn í kringum húsið er vel skipulagður.
Á gólfunum er gegnheilt eikarparket.
Stofan er rúmgóð og björt.
Í borðstofunni eru eikarhúsgögn.
Horft inn herbergisganginn.
Baðherbergið er flísalegt í hólf og gólf.
Arininn setur svip sinn á sjónvarpsholið.
Baðherbergið er vel hannað með stórum spegli.