Við Gvendargeisla í Reykjavík stendur glæsilegt hús sem byggt var 2003. Húsið er 206 fm að stærð og var innviði hússins hannað af Rut Káradóttur innanhússarkitekt.
Flísar eru nokkuð áberandi sem gólfefni í húsinu en annars mætast eik og hvítt sprautulakkað á hlýlegan og vandaðan hátt. Eldhúsið er sérstaklega rúmgott með góðu skápaplássi og fínasta vinnuplássi.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.
Takið eftir skápunum í svefnherberginu. Þeir eru með ljósi undir.
Vaskurinn á baðinu er flottur í laginu.
Hér sést vaskurinn betur.
Baðherbergið er bæði flísalagt og parketlagt.
Forstofuskápurinn er veglegur.
Takið eftir skápunum undir glugganum. Þeir skapa fallega heildarmynd.
Eldhúsið er sérlega vandað.
Í eldhúsinu mætast hvítt sprautulakkað og eik.
Í eldhúsinu er tangi sem hægt er að tilla sér við.
Hér er nóg af vinnuplássi.
Eikin í stofunni skapar hlýleika.