Knattspyrnukappinn Grétar Sigfinnur Sigurðarson hefur sett glæsihús sitt í Skerjafirði á sölu. Húsið er splunkunýtt. Byggt 2014 og 234 fm að stærð.
Húsið er á tveimur hæðum og afar sjarmerandi. Allar innréttingar eru hvítar sprautulakkaðar og í húsinu er hvítur granít-steinn á borðplötunum í eldhúsinu. Baðherbergin í húsinu eru einföld og falleg en að öðru leiti er húsið afar nútímalegt og smart.
HÉR er hægt að skoða það nánar.