Vinalegi leikarinn Matt LeBlanc hefur sett glæsihýsi sitt á sölu, en ásett verð er einn milljarður íslenskra króna.
LeBlanc er eins og er búsettur á Englandi, en hann er annar þáttastjórnandi bílaþáttarins Top Gear. Hver veit nema hann þurfi þó að snúa aftur til heimalandsins von bráðar, en þættirnir hafa hlotið arfaslakar viðtökur.
Í húsinu er að finna fjögur svefnherbergi, bókasafn, stofu með eldstæði svo eitthvað sé nefnt. Þess að auki er garðurinn umhverfis húsið sérlega glæsilegur.
Fleiri myndir má sjá á vef Mirror.