Í byrjun júní þessa árs opnaði nýtt lúxushótel, Tower Suites Reykjavík, á tuttugustu og jafnframt efstu hæð Turnsins við Höfðatorg. Hótelið er í hæsta gæðaflokki og skartar átta svítum með svakalegu útsýni frá hæsta útsýnispunkti í Reykjavík. Svíturnar eru frá 45 til 65 fm að stærð og heita eftir nokkrum af helstu fjöllunum í fjallahringnum sem umlykur höfuðborgina. Á hæðinni er jafnframt glæsileg setustofa, Tower Suites Skylounge, þar sem boðið er morgunverð og barþjónustu. Smartland Mörtu Maríu fékk að kíkja í heimsókn.
Hönnun hótelsins var í höndum Ásgeirs Ásgeirssonar og Áslaugar Þorgeirsdóttur hjá T.ark, arkitektum. Mikil áhersla var lögð á að gestir geti notið útsýnisins sem best. Innréttingar eru allar sérsmíðaðar eftir hönnun T.ark og húsgögnin eru í látlausum en glæsilegum stíl og eru m.a. frá Fritz Hansen, Tom Dixon, Mooi og Space Cph.
Íslensk myndlist í hávegum höfð
Það sem vekur svo athygli er að listaverk eftir íslenska samtímalistamenn prýða veggi hótelsins og þar á meðal einstakt skúlptúrverk úr áli eftir Sigurð Árna Sigurðsson, sem staðsett er í setustofunni, Skylounge.
Það er alveg á hreinu að það mun fara vel um hótelgesti því í hverri svítu er m.a. vínkælir með sérvöldum vínum, Nespresso-kaffivélar, sjónaukar á trönum, háhraða nettenging, Apple TV, Ipad og flatskjár með sérhönnuðu afþreyingarkerfi. Jógamottur, hlaupakort og hágæðabaðvörur eru jafnframt í hverri svítu og er aðgangur í Laugar Spa innifalinn í gistingunni. Morgunmaturinn kemur frá veitingastaðnum Happ á jarðhæð Turnsins og er bæði lífrænn og ljúffengur.
Hótelið hefur verið meira og minna fullbókað frá því það opnaði í byrjun júní. Erlendir gestir sem sækjast eftir einstakri gistiupplifun eru þar í miklum meirihluta. Nokkrar nafntogaðar kvikmyndastjörnur hafa gist hótelið, en ekki fæst uppgefið hverjar þær eru. Einnig hefur verið vinsælt á meðal íslenskra brúðhjóna að eyða brúðkaupsnóttinni á Tower Suites Reykjavík.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er um afar vel heppnað hótel að ræða þar sem smartheitin ráða ríkjum. Nánari upplýsingar um hótelið og lausar gistinætur er að finna á vef hótelsins.