Við Grímshaga 5 í Reykjavík hefur fjölskylda búið sér fallegt heimili. Um er að ræða 226 fm parhús sem búið er að taka í gegn. Rut Káradóttir innanhússarkitekt var kölluð til svo heimilið yrði sem glæsilegast.
Eldhúsið er stórt með grárri innréttingu og fær grái liturinn að njóta sín vel inni á heimilinu. Sérsmíðaðar gráar hillur eru í stofu og einnig í hjónaherbergi.